• Forsíða
  • Fréttir
  • Saga Kvennakórsins
  • Landsmót 2020
  • Um Okkur
    • Stjórnendur
    • Starfsreglur
    • Lög Kvennakórsins
    • Kvennakór Reykjavíkur
    • Myndir
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Saga Kvennakórsins
  • Landsmót 2020
  • Sagan
    • 1993
    • 2012
    • 2011
    • 2010
    • 2009
    • 2008
    • 2007
    • 2006
    • 2005
    • 2004
    • 2003
    • 2002
    • 2001
    • 2000
    • 1999
    • 1998
    • 1997
    • 1996
    • 1994
  • Um Okkur
    • Stjórnendur
    • Starfsreglur
    • Lög Kvennakórsins
    • Kvennakór Reykjavíkur
    • Myndir
  • harpa1

    Kvennakór Reykjavíkur

  • harpa2
  • isinn
  • korinn3
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Móðir, kona, meyja - Vortónleikar Kvennakórs Reyjavíkur

Móðir, kona, meyja - Vortónleikar Kvennakórs Reyjavíkur

21. apríl 2015

Kvennakór Reykjavíkur fagnar langþráðu vori og býður þig hjartanlega velkomna á tónleika í Gamla bíói, fimmtudaginn 7.maí kl. 20:00 og laugardaginn 9.maí kl 18:00.
Að þessu sinni er umgjörð tónleikana sérstaklega glæsileg í nýuppgerðu Gamla Bíói sem um árabil var stærsta og glæsilegasta samkomuhús Reykvíkinga. Húsið lét P. Petersen, sem ávallt var af Reykvíkingum kallaður Bíópetersen, byggja árið 1927 eftir evrópskum fyrirmyndum og var ekkert til þess sparað. Gamla Bíó hefur alla tíð þjónað listinni, bæði sem kvikmyndahús, samkomuhús og nú síðast sem óperuhús enda hefur alltaf þótt einstaklega góður hljómburður í húsinu. Nú hefur húsið verið endurnýjað og uppgert í og það er heiður fyrir Kvennakór Reykjavíkur að stíga þar á stokk með sína tónleika.

Efnistökin tengjast 100 ára afmæli kosningarréttar kvenna á Íslandi. Við syngjum konum til heiðurs og er æviskeið kvenna viðfangsefnið. Tónlistin er fjölbreytt. Sungið er um barnæskuna, ástina og lífið með öllum sínum blæbrigðum og jafnréttisbaráttuna sem ekki sér fyrir endann á þó mikið hafi áunnist undanfarin 100 ár. Senjórítur, kór eldri kvenna sem margar muna tímana tvenna, taka lagið með okkur og syngja um efri árin og Gissur Páll Gissurarson tenór flytur óð til kvenna. Stjórnandi kórsins Agota Joo nýtur aðstoðar Þórunnar Ernu Clausen við að setja sýninguna saman en Þórunn er jafnframt sögumaður. Undirleik annast hljómsveit undir stjórn Vilbergs Viggóssonar.

Miðaverð er 3.900 kr og fer miðasala fram á Midi.is.
Verð fyrir 6-18 ára er kr 2.500
Frítt fyrir 6 ára og yngri..

Einnig fást miðar hjá kórkonum á forsöluverði.
Atburðurinn á facebook: https://www.facebook.com/events/1434500766845765/
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Raddprufur fyrir nýjar kórsystur
    18. desember 2019
  • Lúðraþytur í Langholtskirkju
    3. apríl 2019
  • Opin æfing hjá Kvennakór Reykjavíkur í Janúar
    17. desember 2018
  • Kvennakór Reykjavíkur heldur landsmót Gígjunnar í maí 2020
    31. október 2018
  • Við leitum að hressum og öflugum konum
    15. ágúst 2018
  • Kvennakór Reykjavíkur 25 ára
    23. apríl 2018
  • GALA- Nýárstónleikar Kvennakórs Reykjavíkur
    9. janúar 2018
  • Kvennakórinn keppir í undanúrslitum í Kórar Íslands
    3. október 2017
  • Kvennakór Reykjavíkur tekur þátt í Kórar Íslands
    1. október 2017
  • Kvennakór Reykjavíkur auglýsir eftir nýjum kórsystrum
    22. ágúst 2017
  • Námskeið í kórsöng
    22. ágúst 2017
  • Vortónleikar Kvennakórs Reykjavíkur
    15. maí 2017
  • Jólakveðja 2016
    6. mars 2018
  • Viltu syngja með okkur?
    15. desember 2016

Kvennakór Reykjavíkur

  • Pósthólf 5146
  • postur@kvennakorinn.is
© 2025 Kvennakór Reykjavíkur