Það er allt að gerast hjá Kvennakór Reykjavíkur þessa dagana. Árshátíð nýafstaðin og tókst hún alveg ljómandi vel. Skemmtiatriðin voru glæsileg en ég held ég móðgi engan þegar ég segi að annar alt hafi átt kvöldið þar sem ungverskur dans ásamt búningum sló í gegn. Þær toppa sig á hverju ári þessar elskur :)
Kórinn ætlar að skella sér til Ungverjalands þann 12.júní en þangað til er nóg um að vera hjá okkur.
Kórinn æfir nú af krafti fyrir Whitney Houston tribute tónleika sem verða haldnir í Austurbæ þann 4.maí. Mun kórinn taka þátt í nokkrum lögum en söngvarar verða Jóhanna Guðrún, Íris Hólm, Hanna Guðný, Ína Valgerður, Guðrún Árný og Magni. Einnig munu nokkrar kórkonur sjá um bakraddir.
Við erum mjög spenntar yfir því að fá að taka þátt í þessu frábæra verkefni, enda Whitney í uppáhaldi hjá mörgum. Miðar á tónleikana fást á midi.is http://midi.is/tonleikar/1/6951 og við skorum á alla að mæta.
Vortónleikar Kvennakórsins verða svo haldnir þann 16. og 20. maí í Fella- og Hólakirkju þannig að ykkur er óhætt að taka dagana frá :)