Kvennakór Reykjavíkur er 20 ára um þessar mundir en fyrsta formlega æfing kórsins var haldin 25.janúar 1993. Af þessu tilefni kom kórinn kórfélögum á óvart með tertuveislu þann 23.janúar.
Veislan var haldin í lok æfingar og höfðu kórkonur verið boðaðar fyrr á æfingu, undir því yfirskini að Ágota þyrfti að hætta snemma en vildi ekki stytta æfinguna. Vissum við svo ekki fyrr en Senjóríturnar fóru að streyma í húsið og tertur voru lagðar á borð. Heppnaðist þetta prýðilega og var veislan hin skemmtilegasta.