Við stelpurnar í Kvennakór Reykjavíkur ætlum að skella okkur i söng- og skemmtiferð til Ungverjalands
dagana 13. - 21. júní. Kórstjórinn okkar, Ágota Joó, er einmitt frá Ungverjalandi og erum við mjög spenntar yfir að fara og skoða þetta fallega land með henni.Við munum halda tvenna tónleika, þá fyrri í heimaborg Ágotu, Szeged, þann 14. júní og þá seinni á þjóðhátíðardaginn sjálfan í Vác, sem er um 40 km frá Budapest.
Efnisskráin samanstendur af dásamlegum íslenskum verkum eins og Spinna Minni eftir Misti Þorkelsdóttur; Ó, Undur Lífs eftir Jakob Hallgrímsson og einnig munum við flytja Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns í nýrri útsetningu Árna Harðarsonar, sem hann gerði sérstaklega fyrir Kvennakór Reykjavíkur að þessu tilefni.
Einnig mun kórinn flytja ungversk verk, á ungversku og hlökkum við mikið til að sjá hvernig Ungverjarnir taka því.
Ásamt tónleikunum ætlum við að gera ýmislegt skemmtilegt eins og að fara í vínsmökkun, sigla niður Dóná og hlaupa Kvennahlaupið svo eitthvað sé nefnt af þeirri frábæru dagsskrá sem ferðanefndin okkar hefur samið. Við endum svo ferðina við Balaton vatn þar sem við munum hafa það verulega huggulegt í þrjá daga.
Alls munu um 63 syngjandi konur taka þátt og ásamt nokkrum eiginmönnum mun hópurinn vera 78 manns, sem ætla að sjálfsögðu vera landi og þjóð til sóma.