Það eru tónleikar framundan!
Kvennakór Reykjavíkur ætlar að fara um víðan völl á vortónleikum sínum þann 18. maí í Guðríðarkirkju. Eitt af því skemmtilegasta sem kórinn gerir er að takast á við allskonar tónlist og það mun hann sannarlega gera þetta vorið. Við reynum okkur við smellna þýðingu Þórarins Eldjárns á ABBA lagi úr Mamma Mia, Bítlarnir leggja til nokkur lög og aðdáendur Prúðuleikaranna verða ekki fyrir vonbrigðum.
Kvennakór Reykjavíkur óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og þakkar fyrir allar skemmtilegu stundirnar og stuðninginn á þessu viðburðarríka ári sem er að líða
Megi árið 2017 færa ykkur öllum
gleði í hjartað, hamingju, ást og tónlist <3
Við hlökkum til að heyra frá þér.
Kvennakór Reykjavíkur er kominn heim eftir frægðarför til Spánar þar sem kórinn tók þátt í alþjóðlegri kórakeppni á Lloret de mar. Kórinn fékk gulldiplómu í öllum þeim flokkum sem hann tók þátt í.
Með mikilli tilhlökkun og eftirvæntingu undirbýr Kvennakór Reykjavíkur sig fyrir vortónleika, sem haldnir verða í Langholtskirkju 4. maí n.k. Kórkonur hafa lagt á sig óvenju mikla vinnu við að gera dagskrá vortónleikanna sem glæsilegasta. Ástæðan er sú að kórinn mun taka þátt í keppni sem haldin verður í Lloret de Mar á Spáni 12. – 19. september
Í vetur bregður Kvennakór Reykjavíkur út af vana sínum og heldur nýárstónleika í stað jólatónleika. Laugardaginn 16. janúar mun kórinn halda tvenna tónleika sem verða í Tjarnarbíói kl. 16:00 og kl. 20:00. Þar mun kórinn fagna nýju ári með flutningi á fagurrri tónlist í anda nýársgleðinnar. Upphafin verður dívan sem býr innra með öllum konum og sungið verður meðal annars um Dóná svo bláa, staldrað við í Brúðkaupi Fígarós, hjá hinni blóðheitu Carmen og einnig hjá Kátu ekkjunni.
Kvennakór Reykjavíkur fagnar langþráðu vori og býður þig hjartanlega velkomna á tónleika í Gamla bíói, fimmtudaginn 7.maí kl. 20:00 og laugardaginn 9.maí kl 18:00.
Að þessu sinni er umgjörð tónleikana sérstaklega glæsileg í nýuppgerðu Gamla Bíói sem um árabil var stærsta og glæsilegasta samkomuhús Reykvíkinga.
Kvennakór Reykjavíkur býður gesti hjartanlega velkomna á aðventutónleika í Fella- og Hólakirkju.
Það er von okkar að gestir njóti þess að hlusta á kórinn syngja fallegan jólalsöngvaseið við kertaljós á öðrum sunnudegi í aðventu. Lagavalið er fjölbreytt og alþjóðlegt eins og oft áður.
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Raddprufur fyrir nýjar kórsystur
-
Lúðraþytur í Langholtskirkju
-
Opin æfing hjá Kvennakór Reykjavíkur í Janúar
-
Kvennakór Reykjavíkur heldur landsmót Gígjunnar í maí 2020
-
Við leitum að hressum og öflugum konum
-
Kvennakór Reykjavíkur 25 ára
-
GALA- Nýárstónleikar Kvennakórs Reykjavíkur
-
Kvennakórinn keppir í undanúrslitum í Kórar Íslands
-
Kvennakór Reykjavíkur tekur þátt í Kórar Íslands
-
Kvennakór Reykjavíkur auglýsir eftir nýjum kórsystrum
-
Frá konu til konu - Kvennakór Reykjavíkur 20 ára
-
Kvennakór Reykjavíkur á Árshátíð Eimskips
-
Kvennakór Reykjavíkur 20 ára
-
Fyrsta æfing vorannar 2013